Fjölskyldufjör
FJÖLSKYLDUFJÖR
Frábær fjölskylduskemmtun fyrir allan aldur. Hér er aðalmarkmiðið að hafa gaman og njóta samveru með sínum bestu. Við róum inn í krikann hjá Hofi og sprellum þar, gerum allskonar kúnstir á brettunum, hoppum í sjóinn og látum hugmyndaflugið taka völdin.
Verð: 5.000kr / 3.500kr fyrir 10 ára og yngri.
Innifalið í ferð:
- Kynnig og kennsla á SUP betti
- Róðrabretti, árar og allur öryggisbúnaður
- Þurrbúningur
- Skór og vettlingar
Lengd ferðar: 60 mínútur
Staðsetning: Strandgata 14, við World Class hjá Hofi, Akureyri.
Fjöldi farþega í ferð:
- Minnst: 3
- Mest: 10
Gott að hafa meðferðis:
- Þæginlegur innanundirfatnaður
- Auka föt ef þú skyldir blotna – en líkur á því eru litlar
Skilmálar:
- Aldurstakmark –
- Vera örugg/ur í vatni og vera synt/ur
- Vera líkamlega vel á sig komin/n
- Brettin þola allt að 150kg þyngd
- Óléttum konum er ekki ráðlagt að fara á brettin
Athugið að við mælum með því að ef þið komið með rafmagnstæki (síma, myndavélar eða annað slíkt) að tækin séu vatnsheld eða í vatnsheldum hulstrum.
Hafðu samband fyrir nánri upplýsingar
Skilmálar – veður og aðstæður.
Vinsamlegast athugið að ferðirnar eru mjög háðar veðri og vindum. Af öryggisástæðum áskiljum við okkur þann rétt að fresta/fella niður ferðir ef veður eða aðrar aðstæður uppfylla ekki skilyrði. Þetta getur gerst með stuttum fyrirvara. Ef ferð fellur niður vegna veðurs á viðskiptavinur rétt á fullri endurgreiðslu, einnig er hægt að færa eða endurskipuleggja ferðina.
Lífið er ferðalag, njóttu þess!
Life is an adventure, enjoy the ride!
Hafðu samband
Sími
+354 696 4044
+354 822 8582
Póstfang
pni@pni.is
Heimilisfang
Strandgata 14, við World Class hjá Hofi, Akureyri.
600 Akureyri