SUP NÁMSKEIÐ
SUP NÁMSKEIÐ 2020
SUP námskeiðin hjá okkur verða haldin alla þriðjudaga í sumar kl 20:00. Á námskeiðinu förum við vel yfir undirstöðu atriðin, tæknina við að róa og öryggisatriði. Við róum svo aðeins út á poll og æfum okkur. Við mælum með námskeiði áður en halið er í lengri ferð.
Þeir sem koma á námskeiðið og vilja koma í róður til okkar fá 25% afslátt af ferð hjá okkur, hægt er að velja á milli bæjarróðurs eða kvöldróðurs. Þær ferðir er meira krefjandi.
Verð: 5.000kr
Innifalið í ferð:
- Kynning og kennsla á SUP bretti
- Róðrabretti, árar og allur öryggisbúnaður
- Þurrbúningur
- Skór og vettlingar
Lengd ferðar: 1 klukkutími
Staðsetning: Strandgata 14, við World Class hjá Hofi, Akureyri.
Fjöldi farþega í ferð:
- Minnst: 3
- Mest: 10
Gott að hafa meðferðis:
- Undirlag/ Ull eða hlý og þæginlegur innanundirfatnaður
- Hlýir sokkar
- Auka föt ef þú skyldir blotna – en líkur á því eru litlar
Skilmálar:
- Aldurstakmark – 14 ára
- Vera örugg/ur í vatni og vera synt/ur
- Brettin þola allt að 150kg þyngd
- Óléttum konum er ekki ráðlagt að fara á brettin
- Athugið að við mælum með því að ef þið komið með rafmagnstæki (síma, myndavélar eða annað slíkt) að tækin séu vatnsheld eða í vatnsheldum hulstrum
Alla þriðjudaga kl 20:00
Skilmálar – veður og aðstæður.
Vinsamlegast athugið að ferðirnar eru mjög háðar veðri og vindum. Af öryggisástæðum áskiljum við okkur þann rétt að fresta/fella niður ferðir ef veður eða aðrar aðstæður uppfylla ekki skilyrði. Þetta getur gerst með stuttum fyrirvara. Ef ferð fellur niður vegna veðurs á viðskiptavinur rétt á fullri endurgreiðslu, einnig er hægt að færa eða endurskipuleggja ferðina.
Lífið er ferðalag, njóttu þess! Life is an adventure, enjoy the ride!
Hafðu samband
Sími
+354 696 4044
+354 822 8582
Póstfang
pni@pni.is
Heimilisfang
Strandgata 14, við World Class hjá Hofi, Akureyri.
600 Akureyri